Þáttur 167 - Birna Ósk opnar sig í fyrsta skipti - "Ekki tala við hana, viltu deyja eða?"
MP3•एपिसोड होम
Manage episode 396924059 series 2344980
Helgaspjallið and Helgi Ómars द्वारा प्रदान की गई सामग्री. एपिसोड, ग्राफिक्स और पॉडकास्ट विवरण सहित सभी पॉडकास्ट सामग्री Helgaspjallið and Helgi Ómars या उनके पॉडकास्ट प्लेटफ़ॉर्म पार्टनर द्वारा सीधे अपलोड और प्रदान की जाती है। यदि आपको लगता है कि कोई आपकी अनुमति के बिना आपके कॉपीराइट किए गए कार्य का उपयोग कर रहा है, तो आप यहां बताई गई प्रक्रिया का पालन कर सकते हैं https://hi.player.fm/legal।
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Birna Ósk Ólafsdóttir hefur átt vægast sagt krefjandi ár. Hún fann sig í sambandi með manni sem vakti mikla athygli í miðlum, og ekki af góðum ástæðum. Hann er þekktur fyrir glæpi sína og ógnanir og Birna segir okkur frá því hvernig ferlið var eftir að því sambandi lauk. Hún segir okkur frá því hvernig bataferlið hefur ekki náð sér á skrið vegna ítrekaðar truflarnir, útskúfun, sögusagnir og réttara sagt, að fólk forðist hana eins og heitan eldinn í þeim ótta að þeirra líf stæði í hættu ef þau mundu like-a mynd, tala við hana útí sjoppu eða sjást með henni almennt. Frásögn hennar er átakanleg, en í fyrra gafst líkaminn hennar og sál algjörlega upp. Taugakerfið hrunið og hennar lífskraftur með því. Birna er klár og einlæg, hún segir frá því hvernig hún skilur tilfinningar og ótta fólks ásamt því að hún beri fulla ábyrgð á því að hafa farið í þetta samband sjálf, en ekki óraði henni að þetta yrði útkoman. Þáttastjórnandi hafði samband við aðilann sem Birna var í sambandi með og gaf hann blessun sína á þetta viðtal í von um að þetta gæti aðstoðað hennar bata og er sjálfur nú í bata vegna áfengis og fíkniefnavanda. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
…
continue reading
201 एपिसोडस